Færslur: 2011 Apríl

12.04.2011 10:06

Tíminn...

... líður, flýgur á undraverðum hraða!

Veturinn er svo gott sem liðinn - í það minnsta er snjórinn horfinn af götunum og ég er búin að fara í fyrstu úti klifurferðina í blíðskaparveðri.  Trén eru farin að laumast til að undirbúa það að springa út, fólk er farið að ganga um götur í engum ullarnærfötum og fleiri og fleiri sleikja ís á götunum. 

Veturinn er búinn að vera dásamlegur með nógu af sínu hvíta gulli og mörgum skemmtilegum ferðum með góðu fólki í dásemdinni.  Það er nú samt kominn tími til að ég íhugi að pakka skíðunum og dusta af útileigubúnaðinum.  Ég og Erna ætlum að skella okkur í leiðangur um páskana í nágreni Bergen, bið heitt og innilega að við eigum ekki eftir að rigna í kaf en það er annað mál :) 

Óska ykkur öllum góðs sumars
  • 1
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 10
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 40212
Samtals gestir: 11908
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:09:31