|
Námsmaður á ferð og flugi... Ef ég gæti bara lýst henni |
|
BloggEkki er allt sem sýnist 27.1.2009Brjóst, brjóst, LÆRI, LÆRI - tækifæriÉg er að hugsa um að koma bara ekkert heim - ástandið virðist eitthvað svo.... ekki spennandi - allt í bál og brand - eða er þetta allt saman stefna í réttu áttin? Þetta verður ekki friðsamleg heimkoma er ég hrædd um. Nú fer að vera það stutt í að ég komi heim að ég þurfi að fara að pakka. Hvernig á ég að koma öllu þessu drasli fyrir í ferðatöskunni minni? Það er ótrúlegt hvað maður getur safnað miklu dóti á stuttum tíma - svo er auðvitað kreppa og maður vill ekki henda neinu. Allt er nytsamlegt Er núna búin að vera að vinna að verkefnum sem ég þarf að skila.... af hverju er það sem maður misreiknar alltaf tímann sem maður heldur að fari í verkefnið? Þetta er nú meiri vitleysan! Allavega - er í ruglinu - þetta er ekki minn tími sólahringsins - ætla að halda áfram að vinna - hlakka til að sjá ykkur öll! Kveðja úr útlandinu svefnlausi purkurinn 14.1.2009Tíminn flýgur!Þá er mánuðurinn nær hálfnaður! Úfff... margt sem þarf að klárast hér áður en haldið er heim á leið og einhvernvegin virðist tíminn flúga frá manni. Svakalegt!!! Ég skellti mér til Ungverjalands rétt fyrir áramótin, fékk smá yfrilit yfir Búdapest en var að mestu í Balasagyarmat (eitthvað í þá áttina) sem er frekar lítill bær við landamærin að Slóvakíu. Sigga, litla systir mín, var þar sem skiptinemi og sýndi mér allt það helsta í næsta nágreni... röltum meir að segja yfir til Slóvakíu. Ótrúlega skrítin tilfinning að getað bara rölt á milli landa... ekki fljúga eða fara með bát. Það verður að segjast að ungverjar eru mjög gestrisnir. Þegar við systurnar mættum í heimsókn eitthvert var hlaðið á borðið og afsakað að ekkert væri til svona rétt eftir jólin (borðið samt sem áður fullt af veitingum). Það skemmtilega við þetta var nú samt að vera boðið upp á snafs í morgunsárið og þar sem maður er gestur í ókunnu landi þá segir maður ekki nei :) Hefði sennilega betur haldið mig við snafsinn en veitingarnar - buxurnar virðast eitthvað hafa minnkað eftir ferðalagið Nú er svo bara að taka skólann með trompi og reyna að klára allt áður en lagt er í-ann heim. Áætluð heimkoma er 31. janúar klukkan 22.30. Er nú pínu farið að hlakka til að koma á klakann en á samt eftir að sakna þess að vera hér. Er flutt á mun betri stað en ég var á, er með frábæran sambýling og það er snjór! Vei!!!! Kveð að sinni - þarf að fara að nördast pínu Flettingar í dag: 17 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 15 Gestir í gær: 6 Samtals flettingar: 15562 Samtals gestir: 4174 Tölur uppfærðar: 12.3.2010 23:03:20 |
Vafraðu umUm mig, frá mér... Nafn: Snædís (snownymph á útlensku)Heimilisfang: Solfallsveien - ÅsStaðsetning: NorwayUppáhalds bíómynd(ir): Amelie, P.s. I love you, Silence of the lambsUppáhalds tónlist: Allt í blandUppáhalds manneskjur: Vinir mínir og fjölskyldaUppáhalds matur: mmm... Brynju ís, er það ekki matur annars?Tenglar
Eldra efni |