Námsmaður á ferð og flugi...

Ef ég gæti bara lýst henni

Blogg

Ekki er allt sem sýnist

25.12.2008

Jóla jóla

Jóladagskvöld í miðbæ Ljubljana:  Fólk á röltinu, risastór jólatré, falleg jólaljós, fjölskyldur að rabba saman, eldað vín, lúðrahljómsveit að spila, jólamarkaðir opnir, gasblöðrur með mikka mús og jólasveininum, fólk að leiðast, matarlykt, kirkjuklukkur að hringja, örlítil snjókoma og logn, þjónar á hlaupum og Snædís nýbúin með seinustu ritgerðina fyrir Mengun - uppsprettur og áhrif VEI!!!!

Innilega gleðileg jól til ykkar allra vona að nýja árið færi ykkur gæfu og frið

Jólakveðjur frá Slóveníu

P.s. náði að útbúa brúnaðar kartöflur sem lykt, líta út og bragðast eins og brúnaðar kartöflu eiga að gera emoticon íha.   

Skrifað 25.12.2008 kl. 18:13 af Mér

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.12.2008

F-in 3

Flensa - er maður með flensu þegar maður fær slátt í hausinn þegar maður labbar úti í kuldanum og framleiðir hor eins og manni sé borgað fyrir það?  Held að minnsta kosti að ég sé ekki alveg upp á mitt besta en er vonandi öll að braggast þar sem ég hef hreinlega ekki tíma fyrir einhvern aumingjaskap þessa stundina emoticon

Flitja - Já það er nú það.  Hef ákveðið að flitja þó svo að það sé aðeins einn mánuður eftir hér.  Ætla að flitja í pínulitla íbúð sem ég mun deila með Slóvenskri stelpu sem verður að mestu á ferðalagi.  Mér líst svakalega vel á þetta, íbúðin er í miðbænum sem þíðir að ég er bara 10 mínútur á hjólinu í Júdó og 10 mínútur í skólann - í stað 30 mínúta í júdó og 15-20 mínútur í skólann (allt miðast við ferðir á hjóli hér)  Hlakka svakalega mikið til en hef varla tíma í þetta, á eftir að skrfa ritgerð, finna út lestarferðir, pakka, þrífa, elda, og vera tilemoticon .  Tíminn vill einhvernvegin fljúga frá mér endalaust.

Ferðalög - Ég var í Vín um seinsutu helgi, einstaklega falleg borg með mjög fallegum arkitektúr.  Heillaðist upp úr skónum af Hundertwasser-KrawinaHaus.  Ætla troða einhverju álíka inn í næsta hönnunarverkefni hjá mér - þ.e. ef það eru einhver hönnunarverkefni eftir... úff... það er orðið ansi lítið eftir af þessum blessaða skóla.  Annars já.... Vín.... fór líka í leikhús og skoðaði hallargarða.  Maður er rosalega menningarleguremoticon .  Planið er svo að fara 27 til Búdapest að hitta Siggu litlu systur og eyða áramótunum með henni einhverstaðar .... hmmmm.... man ekki hvað það heitir. 

Vona að þið eigið öll eftir að eiga gleðileg jól og óska ykkur farsæls komandi árs.  Ætla að fara að baka flatbrauð til að borða með hangiketinu sem hún móðir mín góð sendi mér.... mmmmm

Jólajóla emoticon

Skrifað 23.12.2008 kl. 13:47 af Mér

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.12.2008

Hitt og þetta

Þessi vika er búin að vera ansi strembin - búin að hugsa mikið um að gera ritgerð um frárennslismál, hugsa um að versla jólagjafir og hvort ég eigi að flitja fyrir einn mánuð eða svo.  Svo auðvitað þess á milli reynir maður að framkvæma eitthvað af þessu ásamt því að fara á kaffihús, rúnta aðeins um slóveníu og reyna að vera sósíal emoticon

Ég fór með Tonju vinkonu minni og Tjaza að skoða nokkuð merkileg vötn ekki svo langt héðan.  Þau eru merkileg fyrir það að þau eiga það til að koma og fara - í þetta skipti var frekar mikið í þeim.  Ótrúlegt að sjá tré standa úti í miðju vatni en þetta var alveg dásamlega fallegt. 

Í gær átti ég svo frábærann letidag eftir að hafa verið að skrifa um klósett, bakaði smákökur og brauð ef einhver er svangur emoticon

Já svo ég minnist aðeins á af hverju ég er að hugleiða að flitja.  Konan sem á íbúðina er svona stjórnunar frík held ég... kemur hér reglulega til að segja okkur að fara út með ruslið, þrífa hjá okkur (það er sammt ekki það skítugt hjá okkur!) og það besta af öllu - við meigum hafa næturgesti 7 nætur alls, eftir það þurfum við að borga 20 evrur nóttina.  Ein stelpan sem ég var að leigja með er nú þegar flutt út þar sem hún sá framm á að fara á hausinn - en við gerðum mikið grín að því að við þyrftum að rukka ef við fengjum nætur gesti.  Spélegt - villtu koma heim með mér... 20 evrur takk!

Var að borða smákökur og lesa moggann áðan og rakst á þessa grein sem mér fannst einkar áhugaverð http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/14/brown_sparkadi_i_islendinga/ - Er hjartanlega sammála einum viðmælandanum:
"Allir þessir peningar og allir þessir hlutir voru afar óíslendingslegir. Þörfin, neyslan, græðgin og metnaðargirndin, ömurleg öfundsýkin, það er ekki Ísland. Það hefur þungu fargi verið létt af okkur, nú þegar peningarnir og allar þarfirnar eru horfnar á braut. Við getum snúið okkur aftur að því að vera Íslendingar."

Jæja, ætla að fara að læra - duglegi námsmaðurinn emoticon

Skrifað 14.12.2008 kl. 10:45 af Mér

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.12.2008

Spéleg fræðsla... eða eitthvað

Já vikurnar fljúga og þá sérstaklega helgarnar.  Þessi helgi átti að fara í stífann lærdóm en vitir menn... auðvitað var ýmislegt annað sem freistaði.  Til dæmis endaði sunnudagurinn með göngu upp á Smarna Gora - tók engar myndir að þessu sinni - leit svo sem svipað út og seinast þegar ég fór en jafn dásamlegt útsíni. 

Svo það sem toppaði daginn var ferð í Sauna eftir fjallgönguna - stór galli hér að það eru ekki sundlaugar út um allt sem maður getur skroppið í.  Allavega þá var dásamlegt að komast í heita potta og gufubað.  Það sem ég vissi þó ekki var:  Maður á að vera nakinn í gufunni og pottunum.  Ég mætti þarna í sakleysi mínu og er að borga mig inn (hvítuna úr augunum eins og ég hef heyrt einhverstaðar) og rek augunn í berann rass.  Héllt fyrst að þetta væri bara einhver rugludallur en... nei nei - allir saman í sturtu, gufu og potta.  Slátur og brjóst danglandi út um allt.  Vappandi um á handklæðinu einu saman (ef maður er spéhræddur - samt ekki hægt þarna) var bara notaleg tilfinning.  Fékk ærlega útrás fyrir strýpihneigðina þar emoticon  

Þegar heim var komið var kominn tími fyrir síðdegisblundinn emoticon og að komast úr bólinu til að fara í Salsa tíma var hræðilega erfitt en komst að lokum þó í tímann og skemmti mér konunglega.  Vona að ég fái tækifæri til að æfa sveiflurnar þegar heim er komið - lýður við þurfum að fara út að dansa!

Bestu kveðjur úr útlandinu emoticon 

 

Skrifað 8.12.2008 kl. 8:53 af Mér

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 42
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 15492
Samtals gestir: 4152
Tölur uppfærðar: 10.3.2010 03:53:59

Vafraðu um

Um mig, frá mér...

Nafn:

Snædís (snownymph á útlensku)

Heimilisfang:

Solfallsveien - Ås

Staðsetning:

Norway

Uppáhalds bíómynd(ir):

Amelie, P.s. I love you, Silence of the lambs

Uppáhalds tónlist:

Allt í bland

Uppáhalds manneskjur:

Vinir mínir og fjölskylda

Uppáhalds matur:

mmm... Brynju ís, er það ekki matur annars?

Tenglar