|
Námsmaður á ferð og flugi... Ef ég gæti bara lýst henni |
|
BloggEkki er allt sem sýnist 29.11.2008Nei takk - er á hjóli!Að hjóla um Ljubljana er mjög gott, hér eru hjólastígar um allt og maður er afskaplega fljótur að komast um borgina. Nú er hins vegar komið smá strik í reikninginn.... Snjór! Eins mikið og ég elska snjóinn þá hægir hann óneitanlega á manni þegar maður er á hjóli. Verð að viðurkenna að ég hef ekki hjólað mikið heima í snjónum en er að ná tækninni... eins gott að ég er að læra að detta rétt í júdótímum um þessar mundir þar sem bremsurnar og dekkin eru ekki beint gerð fyrir vetrarumferð Fór í frábæra gönguferð á fimmtudaginn (Kriska gora) með manninum sem á íbúiðina sem ég er að leigja og félaga hans - þeir fóru að paraglida en ég röllti niður, verð endilega að prófa þetta! Eitt af því sem er komið á to do listann Annars finn ég að það er stutt í jólaskapið - fékk pakka frá henni móður minni í dag sem var svo góð að senda mér smákökur, harðfisk og hangikjöt. Hvað getur maður beðið um fleira? Snjór og góður matur, mmmmm.... Vona að þið hin hafið það sem allra best 23.11.2008AaaaaaaOk, maður er hér í útlandinu og er að njóta þess að vera hér og allt það en þarf nú samt aðeins að filgjast með klakanum. Þess vegna glugga ég alltaf í upphafsíðuna á mbl.is. Mis skemmtilegar fréttir sem maður les að heiman því einhverr hluta vegna er alltaf bara eitthvað neikvætt þessa dagana í fréttum. Allavega það sem fór samt svakalega fyrir brjóstið á mér núna áðan var könnun sem nýlega var gerð þar sem 78% landsmanna að mig minnir telji að álver sé gott fyrir efnahagslífið hjá okkur. Gott og vel en hvernig í andskotanum ætlar landinn að halda í unga menntaða fólkið sitt???? Ætla stjórnmálaflokkarnir að byggja upp endalaus álver, flytja inn erlent vinnuafl - sem by the way tapar á því að koma núna - og horfa á eftir unga fólkinu sínu flitja erlendis svo það fái vinnu við hæfi? Verð að segja að fyrir mitt leiti þá er maður að íhuga ímsa kosti þar sem maður er ekkert sérstaklega bundinn af neinu á klakanum og ekki er stjórnin að gera neitt í því að laða mann heim. Þegar ég hugsa um Íslensk stjórnmál &%%$&/$#"!#$%)! Kveð að sinni úr hinni friðsömu Slóveníu :) 10.11.2008Hesta/kastalaferðÉg man ekki hvort ég sagði frá því en um seinustu helgi þegar ég fór í gönguferðina upp á Kamniska Sedlo þá hittum við á leiðinni slóvenska konu sem gekk með okkur upp. Núna um helgina fór ég og Elísabeth með henni á hestbak. Hún var svo góð að undirbúa þetta allt saman fyrir okkur - alveg ótrúleg. Ferðin hefði ekki getað heppnast betur, til að byrja með var þoka en upp úr hádegi fór að byrta til. VIð fórum um ótrúlega fallegt svæði austur af Ljubljana sem einkennist af hæðum (ekki fjöllum! - skýrar skilgreiningar hér í landi). Maðurinn sem fór með okkur virtist þekkja hvern mann í þeim bæjum sem við fórum í gegnum og fólk virtist einstaklega vinalegt. Minnti mig mjög mikið á Hvanneyri - smábæjastemmingin. Já - hér í landi er MJÖG stutt milli bæja þannig að maður þarf ekki að fara um stórt landsvæði til að hafa heimsótt marga marga bæi Hestarnir sem við vorum á voru rosalega stórir - smá átak að komast á bak en það hafðist og maður skutlaði sér ekkert af baki að óþörfu! Svo eru þeir bara með 3 gangtegundir - labb (man ekki hvað það er kallað Þegar hestaferðinni var lokið keirði Barbara með okkur í átt að Ljubljana eftir þónokkrum krókaleiðum og kom við t.d. í einum af óteljandi kastölum landsins. Dagurinn endaði svo með salsatíma í Ljubljana þar sem mjaðmasveiflurnar voru æfðar - hafa aldrei verið neitt sérstakar en eftir hestaferð.... úfff... Kveð í bili frá útlandinu 3.11.2008Dom v Kamniski BistriciSælt veri fólkið! Undan og ofan af helginni. Típísk helgi - læra, skoða, borða og sofa! Þarf að sofa extra mikið hér, það er voðalega gott að blunda eftir matinn t.d. Og hvað varðar lærdóminn þá er maður alltaf að reyna að standa sig þrátt fyrir smá tungumálaerfiðleika. Annars verð ég að segja frá þeim leiðindar tíðindum að það er allur vindur úr rauða fákinum. Dekkið er sprunkt og vill ekki láta laga sig, búin að reyna núna tvisvar sinnum og hef gefist upp. Fékk að láni Pony í staðinn - fjólublátt hjól að gerðinni pony - sem heitir Max. Svakalega fínt nema að það er sprunkt á því líka. Veit ekki hvað það er með mig og spurngin dekk. Já, svo við víkjum okkur aftur að helgarmálunum. Ég fór um nýliðna helgi í frábæra fjallgöngu. Vá hvað ég var komin heim! Bæði gróðurinn og víðsínin minnti mig á Ísland. Líður eins og nýrri manneskju eftir hana. Fór með Elísabetu frá þýskalandi upp í skála sem kallast Kamnisko Sedlo. Hér tíðkast það að það er seldur matur og bjór í skálunum - þeir eru bókstaflega út um allar hæðir hér eins og kirkjur - en því miður þá er búið að loka langt um flestum þannig að ekkert varð um bjórþamb uppi á fjalli, nartaði í gómsæta samlógu og harðfisk í staðinn. Mmmmm. Nesti bragðast einhverra hluta vegna alltaf svakalega vel. Frá skálanum sást alla leið til Austurríkis. Slóvenía er pínu, pínu, pínu lítið land! Líður eins og ég svífi um á bleiku skýi eftir gönguna Ætla að fara að leggja mig fljótlega, tók engann miðdegisblund í dag, þannig að bið að heilsa í bili Flettingar í dag: 31 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 26 Gestir í gær: 7 Samtals flettingar: 15813 Samtals gestir: 4238 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 14:58:23 |
Vafraðu umUm mig, frá mér... Nafn: Snædís (snownymph á útlensku)Heimilisfang: Solfallsveien - ÅsStaðsetning: NorwayUppáhalds bíómynd(ir): Amelie, P.s. I love you, Silence of the lambsUppáhalds tónlist: Allt í blandUppáhalds manneskjur: Vinir mínir og fjölskyldaUppáhalds matur: mmm... Brynju ís, er það ekki matur annars?Tenglar
Eldra efni |