|
Námsmaður á ferð og flugi... Ef ég gæti bara lýst henni |
|
BloggEkki er allt sem sýnist 29.11.2008Nei takk - er á hjóli!Að hjóla um Ljubljana er mjög gott, hér eru hjólastígar um allt og maður er afskaplega fljótur að komast um borgina. Nú er hins vegar komið smá strik í reikninginn.... Snjór! Eins mikið og ég elska snjóinn þá hægir hann óneitanlega á manni þegar maður er á hjóli. Verð að viðurkenna að ég hef ekki hjólað mikið heima í snjónum en er að ná tækninni... eins gott að ég er að læra að detta rétt í júdótímum um þessar mundir þar sem bremsurnar og dekkin eru ekki beint gerð fyrir vetrarumferð Fór í frábæra gönguferð á fimmtudaginn (Kriska gora) með manninum sem á íbúiðina sem ég er að leigja og félaga hans - þeir fóru að paraglida en ég röllti niður, verð endilega að prófa þetta! Eitt af því sem er komið á to do listann Annars finn ég að það er stutt í jólaskapið - fékk pakka frá henni móður minni í dag sem var svo góð að senda mér smákökur, harðfisk og hangikjöt. Hvað getur maður beðið um fleira? Snjór og góður matur, mmmmm.... Vona að þið hin hafið það sem allra best Flettingar í dag: 13 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 40 Gestir í gær: 7 Samtals flettingar: 15661 Samtals gestir: 4192 Tölur uppfærðar: 15.3.2010 14:30:54 |
Vafraðu umUm mig, frá mér... Nafn: Snædís (snownymph á útlensku)Heimilisfang: Solfallsveien - ÅsStaðsetning: NorwayUppáhalds bíómynd(ir): Amelie, P.s. I love you, Silence of the lambsUppáhalds tónlist: Allt í blandUppáhalds manneskjur: Vinir mínir og fjölskyldaUppáhalds matur: mmm... Brynju ís, er það ekki matur annars?Tenglar
Eldra efni |