Námsmaður á ferð og flugi...

Ef ég gæti bara lýst henni

Blogg

Ekki er allt sem sýnist

23.11.2008

Aaaaaaa

Ok, maður er hér í útlandinu og er að njóta þess að vera hér og allt það en þarf nú samt aðeins að filgjast með klakanum.  Þess vegna glugga ég alltaf í upphafsíðuna á mbl.is.  Mis skemmtilegar fréttir sem maður les að heiman því einhverr hluta vegna er alltaf bara eitthvað neikvætt þessa dagana í fréttum. 

Allavega það sem fór samt svakalega fyrir brjóstið á mér núna áðan var könnun sem nýlega var gerð þar sem 78% landsmanna að mig minnir telji að álver sé gott fyrir efnahagslífið hjá okkur. Gott og vel en hvernig í andskotanum ætlar landinn að halda í unga menntaða fólkið sitt????  Ætla stjórnmálaflokkarnir að byggja upp endalaus álver, flytja inn erlent vinnuafl - sem by the way tapar á því að koma núna - og horfa á eftir unga fólkinu sínu flitja erlendis svo það fái vinnu við hæfi?  Verð að segja að fyrir mitt leiti þá er maður að íhuga ímsa kosti þar sem maður er ekkert sérstaklega bundinn af neinu á klakanum og ekki er stjórnin að gera neitt í því að laða mann heim. 

Þegar ég hugsa um Íslensk stjórnmál &%%$&/$#"!#$%)!

Kveð að sinni úr hinni friðsömu Slóveníu :)

Skrifað 23.11.2008 kl. 15:09 af Mér

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

31.10.2008

Fagra Ísland

Ég hef alltaf vitað að ég væri heppin að alast upp á Íslandi, það eru óendanlega margir kostir við okkar fagra land en einn er sá kostur sem er að renna almennilega upp fyrir mér nú.  Eftir að hafa farið lítillega um Slóveníu með augun glennt yfir mikilli náttúrufegurð þá er þó sá hængur á að nær hvert sem auga er litið þá eru rafmagnslínur.  Þær liggja hér út um allt, þvers og kruss um fallegt landslagið, í gegnum borgir og bæi.  Þetta getur varla verið hollt. Við erum svo heppin með að hafa víðáttuna okkar og landslag sem er óspillt af þeirri sjónmengun sem rafmagnslínur eru.  

Eins mikið og álver og stóriðjuframkvæmdir eru í umræðunni, og ég vil finna einhverja kosti á þeim, þá eru alltaf að poppa upp fleiri og fleiri ástæður fyrir því að við ættum ekki að samþykkja þær og er sjónmengun ein af þeim, hvort sem er af ljótum byggingum og rafmagnslínum - svo ekki sé talað um þau áhrif sem mengunin frá þeim hefur.  Af hverju eru línurnar ekki lagðar í jörð?  Veit að það er dýrt og auðvitað hefur það líka áhrif á landslagið en... held að það sé þess virði til lengdar þegar túrismi er að aukast og óspillt náttúra er að verða dýrmætari og dýrmætari.  Ég hreinlega hef ekki gert mér almennilega grein fyrir þessu áður - hvað t.d. Evrópa er virkilega þétt setin, með öllu því sem tilheirir manninum.   

Ísland - best í heimi!

Skrifað 31.10.2008 kl. 17:10 af Mér

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 15769
Samtals gestir: 4226
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 10:21:24

Vafraðu um

Um mig, frá mér...

Nafn:

Snædís (snownymph á útlensku)

Heimilisfang:

Solfallsveien - Ås

Staðsetning:

Norway

Uppáhalds bíómynd(ir):

Amelie, P.s. I love you, Silence of the lambs

Uppáhalds tónlist:

Allt í bland

Uppáhalds manneskjur:

Vinir mínir og fjölskylda

Uppáhalds matur:

mmm... Brynju ís, er það ekki matur annars?

Tenglar