Námsmaður á ferð og flugi...

Ef ég gæti bara lýst henni

Blogg

Ekki er allt sem sýnist

21.3.2010

Hæ, ég heit Snædís og ég er snjófíkill!

Anna landvörður kom í heimsókn núna um helgina.  Auðvitað þurftum við aðeins að kíkja á snjóinn og ákveðið vara að fara upp á skíðasvæðið við Osló. 


Það er búið að vera ótrúlega hlítt og vorið farið að gera vart við sig þannig að snjórinn var frekar blautur og í þokkabót var svakaleg þoka.  Við vorum svona á báðum áttum hvað við ættum að gera þangað til... við komumst að því að við gátum leigt Telemark-skíði!!!!! 


Föstudeginum var því eytt í nokkrar biltur, gláp á alla telemarkara í kringum okkur og fullt af hlátri.  Vorum farnar undir lokin að getað rennt okkur niður grænu brekkuna (grænn,blár,rauður,svartur - erfiðleikaskali) nokkuð skammar laust.  Enduðum samt daginn á venjulegum skíðum þar sem lærin voru orðin nokkuð þreitt.

Þegar heim var komið borðuðum við og svo fórum við að skoða.... Telemark myndbönd og búnað á netinu.  Ég sofnaði hugsandi um telemark og vaknaði hugsandi um telemark skíði.  Fyrsta sem ég gerði var auðvitað að grípa tölvuna og tékka á veðurspánni - og vitir menn - hún var góð fyrir daginn.  Anna brjálæðingur var alls ekki á móti því að fara aftur upp í fjall þannig að hlaupið var út á korteri til að ná lestinni svo við værum komnar í brekkurnar á skikkanlegum tíma.  Náðum að telemarka allann daginn, lærin voru þó farin að gefa sig undir lokin en fórum niður svörtubrekkuna - telemarkaði reyndar ekki alla leið niður en.... reyndi þó emoticon

Í dag er líkaminn pínu stirður, svefninn var vel þeginn en mig langar aftur á telemark-skíðn.  Ég er sem sé orðin húkt!  Það er bara einn staður sem mig langar akkurat núna til að vera meira á en uppi í brekku og það er á Íslandi að skoða eldgos - vona að þið sem eruð heima njótið þess!!!!

Kveðja Snædís

Ps.  Ef einhver veit um notaðann telemark búnað fyrir manneskju sem er 160 cm á hæð og í skóstærð 37 þá meigið þið gjarnan láta mig vita....

Skrifað 21.3.2010 kl. 7:34 af Mér

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.3.2010

Fra Grænlandi

ta er eg i græna landinu sem er reyndar svart og hvitt.  Er algerlega heillud af tvi sem fyrir hefur borid og vildi gjarnan profa at bua her.  Tad er allt tofrum likast - isjakar fljotandi um, otrulega kallt, litrik hus og vinalegt folk.  Skrifa meira seinna  um tetta...

Med kvedju fra heillandi landinu

Skrifað 4.3.2010 kl. 22:53 af Mér

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.2.2010

Kósý stemming fyrir Grænland

Mér líður hálfpartinn eins og ég sé í fríi.  Ég er heima hjá mér, dúlla mér að lesa um Grænland, skreppa smá á skíði og borða góðann mat.  Ætti auðvitað að vera að læra og allt það en....

Ferðabakterían komst í hæstu hæðir í gær þegar ég var að lesa um Grænland, skoðaði myndir og ferðalýsingar héðan og þaðan.  Væri nú alveg til í að vera þar lengur en bara viku, og það í Nuuk - æfintýraheitin virðast vera meira á austurströndinni.  Held samt að það sé ákveðinn æfintýraljómi yfir öllu landinu, eitthvað spennandi og kallt emoticon

Mér var boðið í mat sem sé í gærkvöldi.  Elgskjöt með kartöflum og góðri sósu - soldið framandi að borða elg en hann var mjög góður.  Það sem var þó toppurinn á þessu var eftir drykkurinn, Mjöð.  Héllt að þetta væri útdauð hefð að brugga mjöð en skriffinskuhausarnir hér hafa haldið í hefðina....  Nú ætla ég mér að læra að brugga, var ekkert smá gott!

Ætla að halda áfram að "læra" emoticon

Skrifað 28.2.2010 kl. 5:31 af Mér

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.2.2010

Já - sannarlega á ferð og flugi

Þá er það komið á hreint, ég er að fara til Grænlands í næstu viku!!!! Víííí - hefur lengi dreymt um að fara þangað, hver segir svo að draumar manns verði ekki að veruleika!  Bekkurinn er að fara í skólaferð þangað, valið var á milli Frakklands, Grænlands og kannski hugsanlega Íslands - Allur bekkurinn varð auðvitað mega spenntur yfir Grænlani, Ísland þar á eftir en klassíkin í Frakklandi - ekki svo spennandi.

Var að koma heim frá Rune - fór sem sé til Aver-eyjar til hans.  Skíðafærið var frábært á næsta skíðasvæði þannig að við skelltum okkur á skíði.  Ég hef ekki stigið á skíði síðan ég var ca 18 ára.  Ég er enn lifandi en með nokkra marbletti, það eru tré úti um allt sem maður verður víst að passa sig á!!!  Er jafnvel að hugsa um að skipta brettinu mínu út fyrir skíði - ætla næst að prófa telemarkið og svo að ákveða mig.  Velti því fyrir mér hvað ég endi með mörg skíðapör eftir dvölina hér.... bakterían komin á hátt stig!

Ætla að fara að láta mig dreyma um skíðaferð - púður, hopp og nokkur tré

Skrifað 22.2.2010 kl. 19:56 af Mér

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 15783
Samtals gestir: 4232
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 00:50:00

Vafraðu um

Um mig, frá mér...

Nafn:

Snædís (snownymph á útlensku)

Heimilisfang:

Solfallsveien - Ås

Staðsetning:

Norway

Uppáhalds bíómynd(ir):

Amelie, P.s. I love you, Silence of the lambs

Uppáhalds tónlist:

Allt í bland

Uppáhalds manneskjur:

Vinir mínir og fjölskylda

Uppáhalds matur:

mmm... Brynju ís, er það ekki matur annars?

Tenglar